Þetta er ekki heilbrigt

Stundum er opinber umræða hér svo geggjuð að ég veit ekki hvað skal halda. Þar hafa hæst þeir sem telja tilteknar skoðanir hinar einu réttu, aðrar skoðanir eigi engan rétt og sé haldið fram af óþjóðhollu fólki og fíflum. Joseph McCarthy notaði svipaðar aðferðir á sínum tíma og einnig sovétið.

Margt af því skynsamlegasta sem hefur verið sagt hérlendis frá hruninu hefur komið frá akademíunni. Sem betur fer er til fólk hér sem getur hugsað skýrt og er ekki bundið á hagsmunaklafana sem öllu tröllríða. Framarlega í skýrleikshópnum hafa verið hagfræðingarnir Þórólfur Matthíasson og Friðrik Már Baldursson sem hafa lag á að setja flókin mál fram á þann hátt að jafnvel fólk eins og ég skilur hvað um er rætt.

En nú hafa afturhalds- og afdalaöflin, með sjálft Morgunblaðið í fararbroddi (sem hatast orðið við allt og alla), komist að þeirri niðurstöðu að þessir menn séu óþjóðholl fífl og bjánar því þeir hafa leyft sér að benda á hættuna sem er fólgin í því að gefa umheiminum langt nef. 

Þetta er ekki heilbrigt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Og orðin sem notuð eru, Júdas, svikari, landráðamaður. Fyrir það eitt að taka ekki þátt í söng kórsins sem þykist hafa höndlað hinn eina sannleika. Við erum að sigla inn í sama farið og fyrir hrun hvað umræðuna varðar. Þeir sem ekki tóku þátt í hrunadansinum og vildu skoða málin voru fordæmdir.

Finnur Bárðarson, 3.2.2010 kl. 14:58

2 identicon

Mikið innilega er ég sammála þér og Finni.  Þetta er ekki heilbrigt, og finnst þetta þyngra en tárum taki

ASE (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 17:06

3 identicon

Mér hefur nákvæmlega fundist McCarthyismi vera mjög viðloðandi Samfylkinguna. Einnig finnst mér Samfylkingin vera orðinn stalínískur flokkur, þ.e. það á bara að fylgja leiðtoganum í blindni fram af bjargbrúninni. En hver er leiðtoginn? Jóhanna Sigurðardóttir, hennar tími kom - og fór.

Addi (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 17:08

4 Smámynd: Jens Guð

  Ég ætla ekki að nefna nein nöfn.  En mig undrar hvað margir eru yfirlýsingaglaðir og snöggir að stimpla tilgreinda einstaklinga landráðamenn,  Júdasa og annað slíkt fyrir það eitt að hafa aðra sýn á hvernig best verði að málum staðið í erfiðum og flóknum milliríkjadeilum.

Jens Guð, 3.2.2010 kl. 22:59

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Greinin hans Þórólfs er góð, hann setur aðalatriðin fram á hófstilltan hátt, á einföldu máli. Er sammála þér Ómar.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.2.2010 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband