Sko Sigmund!

Mikið var! Spegli fréttastofu útvarpsins tókst í kvöld að fá formann Framsóknarflokksins til að útskýra afstöðu sína í andskotans IceSave málinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk þarna ágætan tíma til að fara yfir málið og sína afstöðu og gerði það prýðilega, reiðilaust og án hefðbundins hamagangs. 

Verst að þetta skuli ekki hafa gerst fyrir löngu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kama Sutra

Sagði hann eitthvað af viti í þetta sinnið?

Ég verð að játa að eyrun á mér eru farin að harðlæsast í hvert skipti sem ég heyri röddina í SDG.  Þannig að ég gaf honum ekki einu sinni séns í þetta skipti - ég stökk umsvifalaust á útvarpstækið og slökkti.

Kama Sutra, 1.3.2010 kl. 19:53

2 Smámynd: Brattur

Hefur svo Sigmundur Davíð eitthvað að segja þegar Icesave er að baki ? Ég stór efa það.

Brattur, 1.3.2010 kl. 23:08

3 identicon

Brattur, þú ert þá búinn að gleyma tillögunum um endurreisn fyrirtækja , heimila og þjóðarbúsins í 18 liðum sem vinstri græn og safó skutu niður, af því að þetta var ekki þeirra tillögur........ mesta gagnrýnina fékk 20% niðfelling skulda á alla......... ekkibara á þá sem skulda mest, eins og vinstra vorið kom með ári síðar

mér finnst þetta ekki vera sanngjarnt comment hjá þér

siguróli kristjánsson (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 23:34

4 Smámynd: Billi bilaði

Sammála þér. Hann talaði skýrt og nokkuð skilmerkilega.

Billi bilaði, 1.3.2010 kl. 23:35

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hann talaði illa og óskýrlega og í raun virkaði hann vandræðilega óöruggur - miðað við að þetta er nú maður sem þóst hefur allt vita og allt geta best varðandi umrætt mál.

Það sem vantar er að ganga á strákinn.  Hvað vill hann nákvæmlega.  Hvað nákvæmlega er ásættanlegt að hans mati o.s.frv.  Fjölmiðlamenn verða að spyrja réttu spurninganna og fylgja þeim eftir.

Í rauninni má túlka orð hans, sérstaklega seinnipartinn, sem að hann vilji eigi að Ísland axli sínar alþjóðlegu skuldbindingar - og sé þ.a.l. að segja "borgum ekki"

Ómar Bjarki Kristjánsson, 2.3.2010 kl. 10:45

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hann er td. með í byjun öfgamýtna um  "engin lagaleg skylda" og að samkv. ESB reglum "sé bannað" að veita ríkisábyrgð.

Bara óskaplegt að heyra í stráknum.

Og han vill, að manni skilst, að bretar "eigi bara að hirða eignirnar" og allt í gúddí.

Hann er að segja faktiskt "borgum ekki"

Ómar Bjarki Kristjánsson, 2.3.2010 kl. 11:02

7 Smámynd: Ómar Valdimarsson

Ég var ekki að leggja mat á hvað hann sagði, heldur hvernig það var gert. Þar fannst mér Sigmundur Davíð standa sig betur en ég hef heyrt hann gera hingað til - ég er loks einhverju nær um hvað hann er að fara. Hvort mér finnst persónulega að það sé rétt leið eða aðferð er allt annað mál. Það liggur til dæmis fyrir nú þegar að samningastrategía stjórnarandstöðunnar hefur sett málið í enn einn hnútinn fremur en að leysa úr því. En maður veit alltént hvað Sigmundur er að hugsa.

Ómar Valdimarsson, 2.3.2010 kl. 11:45

8 identicon

Mér hefur aldrei þótt vandamál að skilja Sigmund Davíð. Hann hefur frá upphafi talað skýrt og alltaf verið sjálfum sér samkvæmur, talað af þekkingu og fært rök fyrir máli sínu. Hinsvegar skil ég ekki ríkistjórnina og ég hef oft átt í vandræðum með að skilja Ómar Valdimarsson.

Hvernig er t.d. hægt að skilja fjármálaráðherra sem hafnar samningi sem ku vera betri en gamli samningurinn sem hann ætlar þó að samþykkja í þjóðarathvæðagreiðslu?????? 

Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 14:54

9 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sigmundur Davíð er einn af fáum, allt of fáum, sem hefur staðið á sinni skoðun varðandi icesave, frá upphafi.

Það hefur svo komið í ljós að hann hafði nokkuð til síns máls, meir en flesta grunaði og vissulega meir en einn og hálfur stjórnarflokkur vill.

Gunnar Heiðarsson, 2.3.2010 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband