Þetta hefði Vigdís ekki gert

Áður fyrr var ég oft stoltur af því að vera Íslendingur. Í dag er ég sosum ekkert að fyrirverða mig fyrir það en...ja, það eru breyttir tímar.

Og aldrei var ég eins ánægður með þjóðerni mitt og á Lýðveldisafmælinu á Þingvöllum 1994 þegar Vigdís Finnbogadóttir steig í pontu og ávarpaði þjóð sína. Það var falleg stund og eftirminnileg.

Nú er Vigdís allt í einu orðin áttræð, sem verður að teljast nokkuð hár aldur. En hún er jafn klassí og ævinlega.

Aldrei hefði Vigdís brugðist við ákúrum í opinberri skýrslu á sama hátt og eftirmaður hennar gerir nú. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Vigdí er vitur kona og hefði sennileg ekki hlaupið til með sama hætti og Ólafur Ragnar gerði. Þá á ég við;

  • Að mæra útrásina svo gríðarlega
  • Að hafna Icesave lögunum
  • Að vera með stóryrði vegna skýrslunnar.

Hamingjuóskir til Vigdísar á afmælisdaginn.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.4.2010 kl. 23:04

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Vigdís er vitur kona og hefði sennileg ekki hlaupið til með sama hætti og Ólafur Ragnar gerði. Þá á ég við;

  • Að mæra útrásina svo gríðarlega
  • Að hafna Icesave lögunum
  • Að vera með stóryrði vegna skýrslunnar.

Hamingjuóskir til Vigdísar á afmælisdaginn.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.4.2010 kl. 23:05

3 identicon

Vá, ég þarf að annað hvort að fá mér gleraugu eða hætta að drekka. Sé allt tvöfallt allt í einu.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband