Siðferði og vitjunartími

Kröfur um betra siðgæði í opinberri stjórnsýslu eru smám saman að bera árangur. Framsóknarmenn í Kópavogi eiga skilið klapp á öxlina fyrir að hafa ekki látið að vilja eiginhagsmunaseggjanna í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í bænum og staðið fastir á þeirri kröfu að Gunnar Birgisson víki úr bæjarstjórastólnum.

Eiginhagsmunaseggirnir vilja ekki skilja að krafan um brotthvarf Gunnars er fyrst og fremst sprottin af siðferðilegum rótum. Hann er ekki lengur hafinn yfir grun eins og bæjarstjórar eiga að vera. Engu máli skiptir þótt hann hafi fengið lögfræðiálit um að lög hafi ekki verið brotin. 

Gott hjá Framsókn - og gott hjá Gunnari að þekkja sinn vitjunartíma, þótt seint sé.

En siðvæðingin á enn langt í land. Það er í sjálfu sér ekkert undarlegt þótt Halldór Ásgrímsson segi nú að einkavæðing bankanna hafi ekki verið mistök - einhvern veginn verður hann að verja sig og afglöp sín. 

Og kannski er rétt hjá Halldóri að einkavæðingin hafi út af fyrir sig ekki verið mistök. Afglöpin fólust fyrst og fremst í hvernig að einkavæðingunni var staðið: helmingaskiptaflokkarnir Framsókn og Íhald skiptu bönkunum á milli sín, eins og þeir hafa skipt flestu öðru á milli sín mestallan lýðveldistímann. Kannski ekki undarlegt þótt núverandi stjórnendur þessara flokka láti eins og þeir láta - það er búið að hrekja þá frá kjötkötlunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þeir eru ekki mjög dannaðir drengirnir sem nú stýra gömlu kjötkatlaflokkunum. Bjarni Ben er þó sínu gætnari með hendur sínar, ég hef ekki séð hann berjast um á ræðustól Alþingis eins og Sigmund Davíð.

Tek undir með þér með Kópavoginn, þar er verið að moka og það er gott. Þetta varar kannski einhverja við sem hafa farið óvarlega. Það er sem sagt að koma betur og betur í ljós að það er vont að brenna sig á kjötkötlunum og ég tala nú ekki um að detta í þá eins og sumir virðast hafa gert

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.6.2009 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband