Mogginn er búinn að vera

Það skiptir engu máli úr þessu hver verður nýr ritstjóri Morgunblaðsins. Mogginn er búinn að vera - varð það um leið og Sveinn Andri Sveinsson og Hallur Magnússon tilkynntu hátíðlega að þeir væru búnir snúa baki við blaðinu.

Það er a.m.k. ekki hægt að draga aðra ályktun af því vægi sem tilkynningar þeirra hafa fengið hjá DV.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Jedúddamía! Ekki Sveinn Andri og Hallur! Þjóðin mun sameinast að baki þeim og segja upp áskrift sinni, allir sem einn!

Flosi Kristjánsson, 22.9.2009 kl. 20:31

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

"Hvað verður nú um Jackie & börnin"!

Steingrímur Helgason, 23.9.2009 kl. 00:09

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hef ekki séð DV en þetta er athyglisvert sem þú segir og efalaust mikið til í því.Hver sem dánarorsökin verður, þá finnst mér trúlegt að mogginn lifi ekki mikið lengur.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.9.2009 kl. 01:29

4 identicon

spurning er þá , ætli Fjölmiðlalögin hans Davíðs Oddsonar hafi þá verið til þess komin að bjarga Mogganum, því í þá daga  hafi menn verið komnir á þá niðurstöðu að Mogginn væri komin í niðurtal, og eitthvað þurfti að gera til að bjarga ættatveldi hans, fyrir stuttu hélt maður að Mogginn væri að verða gott almennt blað, en greinilegt er að eigendum líkaði það ekki og vilja sennilega fara aftur í það gamla far að það sé aftur grjóthart málgagn MAFÍU xD FL okksins

Tryggvi Bjarnason (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 03:05

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Vaknaðu af þínum vota  vinstri draum um, að Mogginn sé kominn á banabeð.

Maður líttu þér nær.

Fréttablaðið er í miklu meiri vandræðum, fjárflæðið til þess dvín hratt og sérstakir og almennir rannsakendur eru að krukka í flæðið.

Bjarni Kjartansson, 23.9.2009 kl. 08:38

6 identicon

Eigum við ekki þennan snepil, verðum við ekki að borga þá milljarða sem voru afskrifaðir ... svo ætlar xD, þeir sem rústuðu íslandi að taka yfir blaðið og baula stefnu sinni & hvítþvotti yfir okkur á okkar kostnað.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 08:39

7 Smámynd: Ómar Valdimarsson

Ég held að ég trúi því þegar ég sé það, að Davíð Oddsson verði ritstjóri Moggans. Hví ætti hann að kæra sig um það? Nú hefur hann tíma til að skrifa bókmenntir og grúska í því sem hann hefur alltaf langað.

Ómar Valdimarsson, 23.9.2009 kl. 10:56

8 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Davíð væri vís með að taka við þessu starfi (þ.e. ef honum verður boðið það) bara til að storka vinstri mönnum sem eru greinilega á tánum.  

Marinó Már Marinósson, 23.9.2009 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband