Kerfið virkaði

Man ég það ekki örugglega rétt að ríkisvaldið hér á að vera þrískipt? Löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald, ekki satt?

Og þetta á allt að virka saman. Þannig að ef fulltrúi framkvæmdavaldsins fer ekki eftir reglunum sem löggjafarvaldið setur, þá kemur til kasta dómsvaldsins.

Það má vel vera að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sé andvíg hverskonar virkjunum og vilji láta auðlindirnar ónýttar. Það er hennar mál. Sjálfum finnst mér eðlilegt að nýta auðlindirnar í þágu fólksins í landinu, svo fremi það eyðileggi ekki landið í leiðinni. Oft verður landslag heldur fallegra þegar eitthvað er búið að byggja í því, þótt á því séu vitaskuld margar undantekningar.

En ég sé ekki ástæðu til að vera með hamagang út í Svandísi þótt Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að henni hefði borið að staðfesta skipulag virkjana austur í sveit. Hún var með einhverjar efasemdir um það – og þá var dómsvaldið látið komast að endanlegri niðurstöðu, sem sé þeirri að hún hafi haft rangt fyrir sér. Það er ekki bannað. 

En er það ekki einmitt þetta sem við viljum - að kerfið virki?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það er gott að þessu sé haldið til haga: þrískiptingin góða. Þeir sem farið hafa halloka í málarekstri að undanförnu hafa iðulega borið við hlutdrægni dómstóla eða þaðan af verra (pöntuð niðurstaða frá "you know who").

Ég held að það sé rétt að menn fari að athuga sinn gang, þegar ráðherrar láta frá sér fara ummæli sem gefa það í skyn að það sé lofsvert að fara á svig við lögin, enda sé það í þágu umhverfisverndar. Slíka sentiment lét fjármálaráðherra frá sér fara á þingi í dag, og má segja að senn sé fokið í flest skjól.

Flosi Kristjánsson, 14.2.2011 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband