Það sem Mugabe vantar...

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig hinum nýja forsætisráðherra Zimbabwe, Morgan Tsvangerai, gengur að starfa með erkiþrjótnum Mugabe. Morgan var brattur þegar hann tók við embætti í dag og sagðist geta staðið við stóru orðin.

Við skulum spyrja að leikslokum - Mugabe hefur hingað til ekki gefið mikið fyrir reglurnar.

Það er ljótt að segja þetta, en það eina sem Mugabe vantar er kúla í hausinn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Davíð gat unnið með 'Olafi

GlG (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 22:40

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sælir feðgar. Þið talið bara fullorðna íslensku. Er ekki bara rétt að senda Davíð, svona án gríns. Ég vil íbúum landsins vel og dreg tillöguna til baka. Það gæti líka verið að þeir mundu leggja D í einelti.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 13.2.2009 kl. 02:33

3 identicon

Sæll Ómar

 Mikið er ég þér innilega sammála viðvíkjandi Mugabe - það hefði átt að gerast fyrir áratug(-um) að hann yrði ráðinn af dögum.  Vesturheimur hefur horft aðgerðarlaus á skepnuna rústa blómlegu landi og færa það aftur um áratugi ef ekki aldir :-(

-M. Már

Magnús Már Þorvaldsson (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 15:49

4 Smámynd: Hjalti Tómasson

Já, það þarf víða að verða landhreinsun af hinum ýmsustu þrjótum sem valta yfir landslýð í fullvissu um eigið ágæti og almennum hroka.Veit ekki alveg þetta með kúluna en svona gerast víst kaupin á eyrinni þar suður frá, það má segja að þetta sé áhætta sem fylgir starfinu og svo mun blessaður gamli maðurinn ekki sjálfur alltaf hafa verið vandur að meðulum í viðskiptum sínum við meinta andstæðinga.

Og kannski hugsar hann eins og sumir sem við þekkjum " Já, það er nú víða matarholan " og er þessvegna tregur til að sleppa tökunum

Hjalti Tómasson, 13.2.2009 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband