Fágæt þrautsegja

Það er ástæða til að hrósa vel og lengi þeim Vilhjálmi Egilssyni og Gylfa Arnbjörnssyni fyrir þrautseigjuna við gerð svokallaðs 'stöðugleikasáttmála' sem nú virðist eiga að formalísera á morgun.

Þeir félagar hafa sýnt fágæta ábyrgð í þessu máli öllu; minnir helst á 'þjóðarsáttarsamningana' fyrir nær tuttugu árum þegar Guðmundur jaki, Einar Oddur, Ásmundur Stefánsson og fleiri slíkir stútuðu óðaverðbólgunni á frægum vínarbrauðsfundum í Hveragerði.

Í vikunni vatt sér að mér maður á götu og skammaði mig fyrir að vera sífellt að mæra ríkisstjórnina.

Það hefur sosum ekki sérstaklega staðið til - en ég segi alveg eins og er: ég vil heldur að henni takist að leysa vandann en að hún renni á rassinn með allt saman. Það væri vondur kostur í stöðunni. Líklega sá versti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

já þetta er frábært hjá þeim. Svo er það Icsave og ESB. Vonandi standa vinstri menn saman núna og vinna að endurreisninni eins og þarf.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 25.6.2009 kl. 22:33

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það munaði víst ansi mjóu  í þessar samningalotu hvað eftir annað og ég tek heils hugar undir með þér að Stöðugleikasattmálinn er hreint afrek. Ríkisstjórnina burt virðist vera einskonat töfrabragð í augum margra hér á landi þessa dagana. Mér finnst að fólk ætti að vera þakklátt fyrir að verið sé að moka þann yfirfulla flór sem safnast hefur upp síðustu áratugi. Það kemur auðvitað vond fýla og margt ljótt fram í dagsljósið, en það er bara eins og með útgrafið kýli. Það verður að láta sig hafa það að kreysta þangað til blæðir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.7.2009 kl. 02:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband