Bloggfćrslur mánađarins, september 2012

Auglýsingaherferđ og lygasögur

Ég hef á tilfinningunni ađ ţađ sé veriđ ađ narra okkur. Fyrir nokkrum mánuđum fóru ađ berast af ţví fréttir ađ taliđ vćri ađ íslensk kona hefđi veriđ drepin í USA fyrir nokkrum áratugum. Ţetta var í blöđum og sjónvarpi og allt heldur óhugnanlegt. Svo komu fyrir tveimur vikum eđa svo fréttir af ţví ađ sennilega hefđi ţessi kona ekki veriđ drepin heldur flutt sig á milli ríkja, gifst aftur og lifađ hamingjusöm til ćviloka.

Nú dúkkar allt í einu upp umfjöllun í Kastljósi međ viđtali viđ stjúpdóttur konunnar sem hefur skrifađ bók um allt saman og ţekkir söguna frá upphafi til enda. Hún vissi alla tíđ ađ ekkert morđ hafđi veriđ framiđ. Og svo sá mađur ekki betur í Kastljósi en ađ bókin vćri til í íslenskri útgáfu.

Hér hefur einhver slyngur útgefandi fengiđ fjölmiđla í liđ međ sér viđ ađ búa til mikiđ – og vćntanlega ókeypis – söluátak.

Hvers vegna fćr mađur ekki söguna alla? Hver bjó til ţessa atburđarás og hvers vegna létu útvarp, sjónvarp, Stöđ 2, DV, Mogginn og einhverjir fleiri fara svona međ sig? Og fara svona međ okkur sem enn gerum okkur vonir um ađ fjölmiđlar séu ekki auglýsingastofur?

Ekki ađ undra ađ útgefandinn vísi hróđugur í alla fjölmiđlaumfjöllunina í auglýsingum sínum!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband