Í skökku liði

Það er trúlega meiri skyldleiki milli hópíþrótta og flokkapólitíkur en ég hef alltaf áttað mig á. Sennilega er það ástæða þess að ég skil hvorki upp né niður í hvoru sem er. Mest vefst fyrir mér hópsálaráráttan sem einkennir bæði íþróttir og stjórnmálafélög. Eldri sonur minn heldur með Liverpool í fullkominni blindni, sama hvað á gengur, og er ekki mönnum sinnandi ef liðið tapar en leikur við hvurn sinn fingur dögum saman ef sigur vinnst. Ég tala nú ekki um sigur á útivelli. Fólk mér ástfólgið trúir í svipaðri blindni á hrunflokkana og kennir Jóhönnu og Steingrími um allt sem aflaga hefur farið allt frá lýðveldisstofnun.

Ég hef verið í nokkrum félögum og yfirleitt kunnað því vel enda hef ég valið félögin sjálfur og sætt mig við reglur þeirra og markmið. Aldrei hef ég þó verið í íþróttafélagi eða stjórnmálaflokki. Blinda tilbeiðslan hentar mér ekki.

Hér er eitt sem ég skil illa sem stopull og ótrúr kjósandi: ef tveir stjórnmálaflokkar ákveða að mynda ríkisstjórn um tiltekinn verkefnalista sem þeir kalla stjórnarsáttmála, má þá ekki reikna með að það sé einhverskonar málamiðlun sem liðsmennirnir gangast undir? Segjum nú að ég hafi kosið annan hvorn flokkinn og skilji að málamiðlanir eru nauðsynlegar: má ég þá ekki reikna með að liðið standi saman um stjórnarsáttmálann jafnvel þótt ekki sé þar allt eins og hver og einn hefði helst kosið sér?

Mér finnst þetta augljóst mál. Agi verður að vera, sagði Svejk og sagði þó margt vitlausara.

En svo kemur á daginn að einstaka leikmenn, í þessu tilviki í liði Vinstri-Grænna, telja sig síst bundna af stjórnarsáttmálanum sem þeir undirgengust og reka eigin stefnu sem fer jafnvel þvert gegn málamiðlunarstjórnarsáttmálanum. Mér sýnist að þessi framkoma sé ekki einasta svik við flokkinn heldur einnig við kjósendur sem vita nokk hvernig kaupin gerast á eyrinni og  skilja alveg eins og ég, hinn stopuli og ótryggi kjósandi, að málamiðlun er málamiðlun.

Væri ekki miklu heiðarlegra og einfaldara fyrir þetta fólk – Lilju Mósesdóttur, Ögmund Jónasson, Jón Bjarnason og Ásmund Einar Daðason – að vera formlega í einhverju öðru liði? Þau virðast ekki halda með sínu liði og gefa skít í málamiðlunina sem lagt var upp með.

Mig grunar að fyrirliðinn í fótboltafélaginu Liverpool myndi ekki þola það lengi að helmingurinn af hans liði væri sífellt að sparka boltanum út af eða að eigin marki í úrslitaleik gegn Manchester United.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er hægt að skilja við eiginkonur,skipta um kærustur.EN aldrei um fótboltalið

Erlingur hólm valdimarsson (IP-tala skráð) 26.5.2010 kl. 15:29

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Ómar. Ég hef aldrei tekið ástfóstri við íþróttafélag og pólitíkin hefur verið mín fylgikona í áratugi. Ég hef leitað nokkuð víða fyrir mér og er núna í Samfylkingunni. Ég er þér fyllilega sammála með það plagg sem kallast stjórnarsáttmáli. Ef þú getur ekki haldið þau ákvæði sem hann byggir á þá ertu ekki fær um að vinna í pólitísku samstarfi. Þeir einstaklingar sem þú nefnir eru öll því marki brennd að hafa ekki þann aðlöðunarhæfileika að stunda það sem kallað er samræðustjórnmál. Að geta ekki unnið í hóp, þau verða hreinlega öll að vera á sviðinu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.5.2010 kl. 22:20

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er nú svo Ómar að stjórnmál eru ekki fótbolti.   Að því er mér skilst þá er fótboltakeppni  stríðsyfirlýsing.  Samstarfssamningur stjórnmálaflokka er allt annars eðlis og í þesskonar samningi er ekki hægt að binda  skoðanir eða samvisku þingmanns, það væri stjórnarskrár brot. 

Að binda í slíkan samning loforð um að breyta öndvert við megin stefnu flokksins eru klár svik við kjósendur viðkomandi flokks.   Þegar flokksforystan fer framhjá megin stefnu flokksins í óþökk lægra settra  og óreyndari í flokknum, þá veldur það flokksforystunni vandræðum þegar frammí sækir.  Fótbolta keppni og samstarfsamningur milli stjórnmála flokka er því vægt sagt kjánaleg samlíking.       

Hrólfur Þ Hraundal, 27.5.2010 kl. 07:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband