Ekki meir, ekki meir
8.9.2008 | 12:47
Ţađ eru allir ađ blogga nema ég. Ţađ er ekki hćgt og ţví byrja ég núna. Ţađ er svosem ekkert fastákveđiđ međ hvađ á ađ blogga um - nema ađ ég er stađráđinn í ađ taka ekki ţátt í ţessu endalausa og eilífa röfli og ţrasi sem stundum einkennir samfélagiđ. Ţađ er til dćmis ekki kreppa í landinu og veđriđ er yfirleitt betra en ţađ var áđur.
Sjálfur er ég hamingjusamur og ánćgđur međ lífiđ. Börnin mín eru öll á landinu og hafa ţađ gott. Hundarnir, sem til skamms tíma voru einu barnabörnin sem ég hélt ađ almćttiđ myndi gefa mér, eru glađir og barnabarniđ hún Salka stćkkar og dafnar. Ţađ eru framkvćmdir í garđinum hjá mér og nú á ég sultu af ýmsum gerđum fram á vor.
Hér eru hlý hús, gott vatn ađ drekka og alltaf nóg vatn til ađ bađa sig upp úr. Matur kostar auđvitađ allt of mikiđ en hráefni er gott.
Hvađ er hćgt ađ hafa ţađ betra?
Ég var ákveđinn í ađ opna ekki fyrir athugasemdir péturs & páls, enda hefur mér sýnst ađ alls konar nafnleysingar noti svona vettvang til ađ ausa skít yfir nafngreint fólk - en nú hefur mér veriđ sagt ađ allir verđi ađ hafa leyfi til ađ tjá sig. Gott og vel, sjáum hvernig til tekst.