Auðmýkt Jóhönnu

Auðmýkt er fallegt orð og lýsir enn fegurri mannlegum eiginleika.

Mér finnst felast auðmýkt í því hjá Jóhönnu forsætis að hafa beðið Breiðavíkurdrengina afsökunar fyrir sína hönd, ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar allrar. 

Það þarf kjark og stórmennsku til að gera svona.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Sammála þessu Ómar.

Auðmýkt er orð sem stjórnendur þessa lands (hvar sem borið er niður en einkum stjórnmálaforingar XD, XS og XB) virðist ekki vita hvað þýðir. Gott frumkvæði Jóhönnu styrkir hana enn frekar og varpar vandræðalegu ljósi á þrúgandi þögn hinna hvað þetta varðar.

Guðmundur St Ragnarsson, 12.3.2009 kl. 15:45

2 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Sammála þér Ómar,það þarf kjark til að gera svona,þetta sýnir hvað það er mikið spunnið í hana Jóhönnu,vonandi leiðir hún Samfylkinguna,hún er fædd foringi og þorir að taka á málum sem eru viðkvæm,áfram Jóhanna.

Jóhannes Guðnason, 12.3.2009 kl. 15:49

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Glæsilegt hjá Jóhönnu.

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 15:52

4 identicon

Hef aldrei skilið hvers vegna þetta stóð í Geir H. Haarde. Hroki kannski?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 10:05

5 Smámynd: Drífa Kristjánsdóttir

Ég er mjög glöð yfir því að Jóhanna baðst afsökunar fyrir okkar hönd.  Skil reyndar ekki að það þurfi kjark til að biðjast afsökunar fyrir það sem gert er á hlut annarra og ég skil alls ekki hvað stóð í Geir varðandi afsökunarbeiðnina.  Ef afsökunarbeiðni Jóhönnu var stórmennskuleg þá hlýtur vöntun á afsökunarbeiðni Geirs að hafa verið lítilmannleg.

Drífa Kristjánsdóttir, 13.3.2009 kl. 12:31

6 Smámynd: Ómar Valdimarsson

Það eru mörg dæmi um að landsfeður hafa ekki viljað biðjast afsökunar á misgjörðum þjóða sinna, svo furðulegt sem það nú er. Það var til dæmis ekki fyrr en John Howard hafði verið felldur í Ástralíu að frumbyggjarnir voru beðnir afsökunar - og þá af nýja forsætisráðherranum. Dæmin eru fleiri: Bandaríkin, Kanada, Bretland...

Svo það er auðvitað alveg rétt hjá Drífu að það ætti almennt ekki að  þurfa stórmennsku til að segja 'afsakið' - en einhverra hluta vegna vefst það fyrir mörgum. Og litlir kallar eiga það sameiginlegt að skorta auðmýkt...

Ómar Valdimarsson, 13.3.2009 kl. 14:14

7 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Sammála þér Ómar. Afsökunarbeiðnin sýnir að Jóhanna er ekki bara fæddur leiðtogi, hún er líka manneskja , ólíkt forvera hennar. Bestu kveðjur.

Þráinn Jökull Elísson, 18.3.2009 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband