Vor í lofti

Ég skemmti mér við það í fyrrasumar að setja saman fuglahús sem ég hengdi svo uppí tré á hlaðinu hjá mér. Nú eru komnir íbúar í húsið - ógnarmontinn starri sem situr þar daga langa og syngur og sperrir sig eins og hann eigi allt hverfið. Eða að minnsta kosti fuglahúsið og mitt hús með.

Ég er er að hugsa um að láta hann borga fasteignagjöld.

Auðvitað hafði ég séð fyrir mér að þarna myndi setjast að máríuerla eða lóa eða eitthvað þaðan af merkilegra - jafnvel páfugl. En ég er sáttur við starrann, hann er skemmtilegur fugl. Og betra að hafa hann í fuglahúsi uppí tré en í þakskegginu, eins og var hér um árið.

Þetta hlýtur að vita á vorið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki hægt að elda svona kvikindi

Erlingur hólm valdimarsson (IP-tala skráð) 15.3.2010 kl. 20:33

2 Smámynd: Ómar R. Valdimarsson

Getur þú ekki gert eitt til, fyrir Barmahlíðarslektið?

Ómar R. Valdimarsson, 15.3.2010 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband