Bömmer fyrir Stöđ 2

Ţađ er náttúrlega bömmer fyrir Stöđ 2 ađ ţurfa ađ éta ofan í sig frétt um meinta fjármagnsflutninga nafngreindra manna í skattaskjól í útlöndum korteri fyrir hrun.

En ţađ er enn verra fyrir fréttastofuna ađ ţurfa ađ upplýsa ađ hún stundađi vond vinnubrögđ: fór í loftiđ međ máliđ eftir samtal viđ einn mann en engar stađfestingar.

Eđa eins og segir í afdráttarlausri yfirlýsingu fréttastjórans:Fréttastofan byggđi fréttaflutninginn á frásögn heimildarmanns, en hafđi ekki nein gögn undir höndum er studdu frásögn hans.”

Ţađ verđur ţó ađ reikna Stöđ 2 og Vísi.is ţađ til tekna ađ í yfirlýsingunni er ekkert dregiđ undan, ţessi fúskvinnubrögđ eru viđurkennd undanbragđalaust.

Međ ţessu kemst fréttastofan vćntanlega undan kostnađarsömum – og fyrirfram töpuđum – málaferlum.

Og lćrir vonandi af mistökunum.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Ţađ má líka spyrja hver neyddi Stöđ 2 ađ koma međ ţessa yfirlýsingu.

Jón Frímann Jónsson, 10.5.2010 kl. 22:35

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mistökin voru alvarleg og sennilega er kalt hagsmunamat hjá Náskersstöđinni ađ betra sé ađ viđurkenna mistökin undanbragđalaust. Međ ţví telja ţeir sig lágmarka tjóniđ.

Ég sé ekkert göfugt viđ ţađ.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.5.2010 kl. 00:03

3 Smámynd: Ómar Valdimarsson

Afsökunarbeiđnin og játningin hafa samt ekki dugađ ţví nú hefur fréttastjórinn sagt upp vegna ţessa sama máls. Ţađ hefur hann vafalaust ákveđiđ sjálfur enda prinsippmađur.

Hann hefur ţví dugađ álíka lengi og ađrir fréttastjórar á Stöđ 2, međal líftími í ţví starfi mun vera um 16 mánuđir. Ţađ er ađ sjálfsögđu allt of skammur tími í slíku starfi. 

Ómar Valdimarsson, 11.5.2010 kl. 09:56

4 Smámynd: Ómar Valdimarsson

Ţađ eru hins vegar ekki góđar fréttir ađ sérstakur ađstođarmađur forstjóra 365 eigi ađ taka viđ fréttastjórninni, a.m.k. um tíma. Stjórnendur 365 hafa sýnt oftar en einu sinni, og jafnvel viđurkennt, ađ ţeir bera ekki skynbragđ á eđli blađamennsku. Sá algildi sannleikur ađ í fjölmiđlun beri ađ hafa skörp skil á milli ríkis og kirkju, ţ.e. á milli ritstjórnar og rekstrar, hljómar í eyrum ţeirra eins og hver önnur vitleysa. Ţađ er bráđnauđsynlegt ađ frelsa Stöđ 2 úr klóm núverandi eigenda. 

Ómar Valdimarsson, 11.5.2010 kl. 10:08

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála, Ómar

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.5.2010 kl. 10:22

6 identicon

Eitt sem vekur undrun. Ef fyrrverandi fréttastjóri er svona mikill prinsippmađur, af hverju lét hann ţá fyrrverandi framvćmdastjóra Alţýđubandalagsins sjá um margar helstu pólitísku fréttir stöđvarinnar?

Starkađur (IP-tala skráđ) 11.5.2010 kl. 15:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband