Tuggið í amstri dagsins

 ADDIS ABABA: Það er ekki mikið um að vera í gömlu keisaraborginni á sunnudögum – en samt er gríðarlegur mannfjöldi á ferli - sýna sig og sjá aðra, sennilegast. Við fórum tveir saman í gönguferð um Piazza svæðið í miðborginni (upphaflega svo nefnt af Ítölum sem reyndu að leggja Eþíópíu undir sig fyrir síðari heimsstyrjöld); þar voru eingöngu skóbúðirnar opnar og svo kaffihúsin. Kaffi er óvíða betra en hér enda er þessi hluti Afríku ekki aðeins vagga hins upprétta manns, heldur einnig kaffis. Vonandi tekst mér að ná með mér poka eða svo í jólauppáhellinguna.

Og hvarvetna voru menn að selja khat eða tyggja khat – runnalauf sem sögð eru vekja mönnum nokkra gleði og örvun í amstri dagsins. Ég sá ekki betur en að bæði karlar og konur væru að tyggja, frekar þó eldri konur og alls ekki ungu skvísurnar sem ganga um hnarreistar og glæsilegar.

Af þessu dópi fara misjafnar sögur. Germai, kollega minn sem fæddist í Erítreu en er nú orðinn Kanadamaður, stundaði nám hér í borginni í lok keisaratímans. Fyrir lokaprófin þurfti hann að halda sér vakandi heilu sólarhringana og þar kom að honum dugði ekki að drekka sterkt kaffi. Skólabróðir hans færði honum tuggu af khat og sagði að þetta myndi efalaust duga.

Svo fékk Germai sér tuggu og sofnaði umsvifalaust. Svaf í heilan sólarhring og rétt náði í prófið – sem hann marði. Það varð lítið úr örvuninni í það skiptið.

En ég dreg stórlega í efa að það væri efni í sjónvarpsfrétt hér í landi þótt þingmaður fengi sér tuggu af khat í hádeginu og greiddi svo atkvæði um kvöldið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það má með sanni segja að sinn er siður í landi hverju. Fróðlegur pistill frá framandi landi, takk fyrir það.

Það væri kannski ráð að gefa maraþonræðumönnum á Alþingi smá khat vita hvort þeir lognuðust útaf, sennilega ekki góð hugmynd æ æ

Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.12.2009 kl. 02:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband